Strympuspjall

05.11.2008 13:21:26 / Gunna

Styttist....

Það styttist í helgarferðina okkar!!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.10.2008 16:54:10 / Begga

HITTINGUR

HITTINGUR Í KVÖLD HEIMA HJÁ BETU KLUKKAN 8:30. ALLAR AÐ KOMA SEM GETA MÆTT.

SJÁUMST HRESSAR

KVEÐJA
BERGLIND


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.10.2008 13:27:03 / Begga

Myndir

Í tilefni af því að nú styttist í hina árlegu og stórskemmtilegu sumarbústaðarferð okkar þá var ég að enda við að setja inn nokkrar myndir frá síðustu ferð.

Þetta eru frábærar myndir og greinilegt að það var mjög gaman hjá okkur, við erum einstaklega hressar á flestum myndunum en á sumum þeirra þá erum við minna hressar ;)

Góða skemmtun og við verðum í bandi þegar nær dregur á hittinginn okkar.

Kveðja
Berglind


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.10.2008 20:05:09 / ebet

plön fyrir sumarbústað

Sælar skvísur

Hvernig líst ykkur á að hittast heima hjá mér, þriðjudagskvöldið 28. okt til að plana sumarbústaðaferðina? kl ca 9?

kv Elísabet

» 7 hafa sagt sína skoðun

14.10.2008 10:52:35 / Gunna

Fréttir

Sælar Strympur :)

Það getur velverið að flestar ykkar hafi séð fréttirnar á heimasíðunni okkar :) En alla vega ákvað að setja það hérna inn líka.

.... Við eigum von á lítilli STELPU!!!!!   :d



» 1 hafa sagt sína skoðun

09.10.2008 10:06:09 / Begga

Hæ hæ

Jæja sætu skvísur

Eruð þið ekki orðnar spenntar fyrir sumarbústaðarferðinni okkar. Þetta verður geðveikt gaman. Ég er allavega farin að hlakka til að syngja í singstar, föndra, hlæja, borða góðan mat og dúllast í heita pottinum. Ég vona bara að við þurfum ekki að hella heitu vatni í þennan pott með reglulegu millibili eins og síðast :d.

Þurfum við svo ekki að hittast fljótlega og skipuleggja þetta eitthvað eins og við gerðum síðast ?

Vona að meðgangan gangi vel hjá þér Gunna, ég sendi þér allavega góða strauma og vona að brjósklos og annað slíkt hrjái þig ekki.

Knús og kossar
Berglind


» 6 hafa sagt sína skoðun

03.10.2008 15:45:58 / Begga

Sumarbústaðarferð strympanna

Erum við þá allar ánægðar með að fara helgina 7. - 9. nóvember?

Ég vona að við komumst allar þessa helgi því þetta verður svo miklu skemmtilegra ef við mætum allar, við erum nefnilega allar svo æðislegar :)

Nú verðið þið allar að kvitta fyrir komuna ykkar og láta vita hvort þessi helgi hentar, um leið og þið eruð allar búnar að láta í ykkur heyra þá panta ég sumarbústað fyrir okkur.

Kveðja
Berglind


» 8 hafa sagt sína skoðun

26.09.2008 12:42:22 / Gunna

Sumarbústaðarferð

Sendi líka tölvupóst.. ef ske kynni að einhver kíkir ekki hingað inn reglulega.

En hvað segið þið um að fara að skipuleggja sumarbústaðarferðina? Var ekki planið að hún yrði árleg? Er ekki einhver tilbúinn að taka að sér að finna helgi sem hentar flestum og skipuleggja dæmið. Gæti verið í haust eða í vor.


» 15 hafa sagt sína skoðun

08.09.2008 20:10:03 / Begga

Hæ hæ skvísur

Hvað er svo að frétta af ykkur sætu skvísur ???

Héðan af Reykjanesinu er allt fínt að frétta, er bara að reyna að koma mér í lærdómsgírinn enda veitir ekki af. Er einnig að vinna í leikskólanum og líkar svaka vel.
Sjáumst við ekki á Hjallaráðstefnunni Elísabet ???

Ætla að nota tækifærið og óska henni Gunnu og Gísla innilega til hamingju með bumbubúann, þarf að fara að taka upp saumadótið og sauma eitthvað fallegt handa krílinu :). Vona að meðgangan gangi vel og það væri gaman að fara að hitta ykkur allar við tækifæri.

Knús og kossar
Berglind


» 15 hafa sagt sína skoðun

15.08.2008 08:24:18 / Bryndís

Gönguferð

Hæ hæ,

hvað segið þið um góðan göngutúr og spjall eftir vinnu (jafnvel bara eftir kvöldmat ef það hentar betur) einhvern tímann í næstu viku?
Mán, þriðjudag eða miðvikudag? 

kveðja,
Bryndís




» 7 hafa sagt sína skoðun

25.07.2008 14:34:02 / Bryndís

Hittingur Sunnudag 27.júlí


Hvar?
Inngang húsdýragarðsins

hvenær?
kl 11, sunnudaginn 27.júlí

Hvað á að taka með?
góða skapið, klæða sig eftir veðri, pulsur, pulsubrauð, drukk,

ég skal taka með tómatsósu, hver tekur sinnep? steiktan lauk?

kv. Bryndís

» 5 hafa sagt sína skoðun

08.07.2008 15:16:06 / Gunna

Hittast

Sælar skvísur,

Hvað segið þið um að hittast með krakkana einhvern blíðviðrisdaginn í Húsdýragarðinum, getum tekið með okkur pylsur og grillað og á meðan krakkarnir hlaupa frá sér allt vit þá getum við slúðrað frá okkur allt vit :)


» 26 hafa sagt sína skoðun

10.06.2008 08:39:39 / Gunna

Sumarið framundan

Sælar skvís,

Hvað er að frétta?? Hvað á að gera í sumar??


Það eru bara 10 dagar þar til ég fer í sumarfrí og 11 dagar þar til við förum til Danmerkur. Hlakkar þvílíkt til :) Verst að maður er ónýtur í bakinu en ég ætla að gleyma því í Danmörk, tek bara með mér fullt af verkjalyfjum og svo ætla ég að kaupa mér svona ferða-bak-púða í Betra bak, hann hjálpar vonandi  til  í flugvélinni og á meðan við keyrum um allt Jótland :)

kveðja Gunna


» 7 hafa sagt sína skoðun

02.06.2008 09:25:38 / Gunna

Sex and the city

Sælar

Það kom til tals í bústaðnum að við myndum fara saman að sjá  sex and the city,.. hvenær eigum við að gera það??

Næstu helgi?


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.05.2008 15:14:19 / Bryndís

30 ára afmæli - stelpuferð

Hæ hæ stelpur!

Heyrði af vinkonuhóp sem ákvað að gefa ekki hvor annari 30 ára afmælisgjöf, en fara frekar saman til útlanda á árinu.

Hvað segið þið um að skreppa í eitthverja skemmtilega ferð saman árið 2009 :D

Kannski bara í september 2009 ? Gætum farið til London, Barcelona, Berlín, Róm, París, bara eitthvað hérna í evrópu enn oft ágætis veður í september, gætum skoðað okkur um og notið þess að vera í skemmtilegri borg, farið út að borða og bara haft það notó :D
Þarf ekkert að vera svo dýr ferð.
Gætum þess vegna fengið okkur eitt herbergi saman á farfuglaheimili. Þyrfti ekki að vera svo dýrt.

Hægt að fá flug á 16 þúsund á mann, ef maður kaupir tímanlega hjá express.
Ef við færum t.d. til parís gætum við gist á gistiheimilinu D-artagnan sem er rétt hjá metró, kostar 22 evrur á mann nóttinn. Það er bar í kjallaranum þar og ýmis aðstaða fyrir gistilanga. Hef gist þar og líkaði bara vel :D
semsagt ef við værum 4 nætur þá væri gistingin 2600 x 4 = 10400.

Gætum því fengið flug á gistingu á um 27 þúsund krónur ca. á mann. Svo kostar viku metró kort ekki svo mikið í parís, og mjög þæginlegt að nota metró þar. Semsagt yrði ekki svo dýr ferð. Svo bara út að borða og kannski aðgangur í louvre safnið og svona.
Myndi kannski fara upp í 60 þúsund krónur.  Svo þarf maður ekkert að versla frekar en maður vill.

Hvað finnst ykkur um þessa hugmynd?




» 16 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8